Konur geta breytt heiminum

Konur geta breytt heiminum

Guðrún G. Bergmann er frumkvöðull í umhverfisvænni ferðaþjónustu og vinnu að vottun fyrirtækja og sveitarfélaga. Hún hefur skrifað fjölda bóka um sjálfsrækt og heilsumál og haldið ýmiss konar námskeið með áherslu á hugrænt atferli, heilsu og jákvæðni.

Í þessari bók hvetur Guðrjún konur til að vinna saman og taka upp grænan lífsstíl. Bókin er bæði aðgengileg og skemmtileg og sýnir fram á að oft er það bara hugsunarhátturinn sem þarf að breytast svo gera megi sömu hluti á örlítið grænni átt. Um leið er hægt að spara, fara betur með ráðstöfunartekjurnar og sýna umhverfinu og náunganum meiri umhyggju. Lærðu hvernig þú getur sameinað krafta þína, kröftum annarra kvenna og lagt þitt af mörkum til að breyta heiminum.

Bókinni er skipt í 11 stutta kafla með fróðleik og fagurgrænum ráðum, meðal annars fyrir heilsuna og útlitið, heimilið, fjölskylduna, vinnuumhverfið, garðinn og ferðalög. Bókin á heima á hverju heimili og er tilvalin tækifærisgjöf til kvenna svo efla megi grænan lífsstíl til að skapa vellíðan og betra samfélag.

Bókin er prentuð hjá hinni umhverfisvottuðu prentsmiðju Hjá GuðjónÓ. Bókinni er pakkað í maíssterkjufilmu sem framleidd er hjá Plastprent sérstaklega til þessara nota. Maíssterkja brotnar niður í náttúrunni og eyðist á 10 – 45 dögum við bestu skilyrði.




Konur geta breytt heiminum
Konur geta breytt heiminum - með nýjum lífsstíl
Tegund: Kilja
Verð: 2.990 kr. 1.690 kr.