Sápuhnetur
Nýtt á Íslandi
Sápuhnetur Lífrænar
Hvað eru sápuhnetur?
Sápuhnetur eru í raun ekki hnetur heldur ávöxtur af sápuhnetu-trénu sem vex vilt á Indlandi.
Sápuhnetan er náttúrulega sólþurrkuð án þess að komast í snertingu við efnafræðilegt ferli, skaðleg efni eða tilbúin innihaldsefni. Sápuhneturnar eru lífrænt ræktaðar og er vinnsluferlið þeirra 100% lífrænt. Þær eru tíndar af heimafólki sem fær sanngjörn laun fyrir vinnu sína.
Notkunarleiðbeiningar:
Setjið 3-4 skeljar (miðað við mjúkt vatn) í litla taupokann sem fylgir með (eða í sokk) og hnýtið fyrir. Setjið pokann inn í þvottavélina með óhreinum þvottinum og þvoið eins og venjulega.
Allir geta notað sápuhneturnar og eru þær sérstaklega góðar fyrir viðkvæma húð. Þar sem sápuhnetur eru ávöxtur en ekki hnetur þá þarf ekki að óttast hnetuofnæmi.
Sápuhnetur eru áhrifamiklar en á sama tíma mildar. Þær skila þvottinum þínum hreinum og ferskum, þær halda litunum björtum og fara vel með fötin þín. Sápuhneturnar má nota á allan þvott og á öllum hitastigum. Þær skila fötunum þínum ótrúlega mjúkum án þess að þörf sé á sérstöku mýkingarefni. Má nota á ull og silki.
Eftir notkun má setja skeljarnar í safnhauginn.
Sápuhneturnar er hægt að nota fyrir fleira en bara þvottinn
Frekari upplýsingar væntanlegar.
Umbúðir
Sápuhneturnar koma í taupokum sem eru óbleiktir. Vegna flutninga er nauðsynlegt að pakka þeim í plast en notast er við boiplast sem er umhverfisvænt. Með hverjum poka fylgir einn lítill taupoki til að nota í þvottavélina.
Sápuhnetur eru EKKI ætar
Hálft kíló dugar í u.þ.b. 75 þvotta miðað við að þær séu notaðar einu sinni, ef þvegið er á undir 40° er hægt að nota hvern skamt nokkrum sinnum. Þannig getur hálft kíló auðveldlega dugað fyrir 150 þvotta og jafnvel meira.
Sápuhnetur - 1/2 kg.
Verð: 3.290 kr. 2.990 kr.
Sápuhnetur - 100 gr.
Verð: 850 kr.