Fitted og prefold
Hvað er fitted bleia?
Fitted bleia er úr mjúku rakadrægu efni sem er sniðin að barninu, jafnvel með teygjum um lærin og/eða í mittið. Sumar sniðnar bleiur eru með vasa fyrir auka innlegg til þess að auka rakadrægnina, en aðrar eru með föstu innleggi eða engu innleggi. Fest með riflási, smellum eða án festinga (þá er t.d. hægt að nota NappiNippas bleiufestingu).
Helstu kostir: Venjulega ódýrari en AIO og vasableiur, mjúkt efni sem tekur við miklu.
Helstu ókostir: Þarf cover yfir, ef ekki er riflás né smellur á bleiunni þá gæti verið þörf á annarskonar festingu.
Hvað er prefolds?
Prefolds er forbrotin bleia þar sem búið er að sauma saman nokkur lög af efni í ferhyrning til þess að gera hana rakadræga. Oft er henni skipt í þrjá hluta þar sem miðjan er þykkari en hliðarnar og eru merktar t.d. 3-6-3 eða 4-8-4 sem gefur til kynna fjölda efnislaga í hliðum og miðju. Nokkrar aðferðir eru notaðar við ásetningu og eru oftast leiðbeiningar á pakkningunni.
Helstu kostir: Einn ódýrasti kosturinn í taubleium, einfaldari en gasbleia, nýtist sem innlegg þegar bleian sjálf er orðin of lítil.
Helstu ókostir: Þarf að setja cover yfir, er án festinga en hægt að nota t.d. NappiNippas bleiufestingu (þó ekki nauðsynlegt, í sumum tilfellum er nóg að láta cover halda bleiunni).
![]() BumGenius fitted |
![]() Swaddlebees prefolds |
![]() Nature Babies Diddy diaper |


