Nature Babies sniðin bleia - Diddy diaper

Diddy bleian er sniðin bleia sem kemur í tveimur stærðum. Stærð eitt hentar frá fæðingu upp í u.þ.b. 7 kg. og stærð tvö hentar börnum 6-16 kg.
Næst húðinni er mjúkt bómullar-jersey, innan í bleiunni er falið innlegg (tveggja laga í stærð eitt og þriggja laga í stærð tvö) og yst er bómullar-terry. Teygjur eru við mitti og læri svo að bleian leggst vel að barninu. Engar festingar eru á bleiunni en hægt er að nota Nappi Nippa festingu eða láta bleiuhlífina/buxurnar halda bleiunni.
Þar sem engar festingar eru á bleiunni er hægt að draga úr hæð bleiunnar með því að brjóta framhlutann og gera þannig minni bleiu sem passar á minni börn.
Stærð 1 - passar frá fæðingu upp í u.þ.b. 7 kg.
Verð: 1.690 kr.
Stærð 2 - passar u.þ.b. 6-16 kg.
Verð: 1.990 kr.


