Swaddlebees AIO

Einstök AIO (allt-í-einni) bleia sem sameinar þægindin sem AIO bleia veitir og styllanleikan sem vasableia gefur.
Vatnshelt ysta lag úr PUL, þrefalt gæða microfiber-terry saumað fast, eitt lag af microflís, og heilt lag af bómullarvelúr næst húð barnsins.

Microfiber-terry er notað sem innlegg þar sem það hefur þann eiginleika að draga í sig vökva hratt. Eitt lag af microflís er notað til að veita þurrt lag á milli velúr lagsins og innleggsins. Lífræn bómull er eitt af minnst ofnæmisvaldandi efnum sem vitað er um og er því notað næst barninu. Einnig er bómull mjög rakadræg.
Í telfellum þar sem auka rakadrægni er þörf, þá er hægt að setja doubler eða innlegg í vasann aftan á bleiunni og hentar þá vel að nota doubler/innlegg úr hamp.
Bleiuna þarfa að þvo fyrir notkun, helst þrisvar til fjórum sinnum og helst þurrkaðar á milli þvottana. Þetta gerir það að verkum að bómullarefnið ýfist upp og verður rakadrægt. Bleian gæti lekið ef hún er ekki for-þvegin.
Stærðir:
Small 3,5 - 7 kg.
Medium 5,5 - 11 kg.
Large 10 - 18 kg.

Swaddelbees AIO Gul - til í medium
Verð: 4.290 kr.
Ef þú sérð ekki litinn eða stærðina sem þú óskar eftir hafðu þá endilega samband, dagny [at] isbambus.com