Swaddlebees prefold

Prefold er forbrotin bleia sem auðvelt er að nota fyrstu vikurnar.
Swaddlebees Chinese Prefolds er úr óbleiktri bómull.
Nú í þremur stærðum.
Stærðarlafla
Small 3-7 kg.
Medium 5,5-11 kg.
Large 7-14 kg.
4×8x4 sem þýðir að miðjan er 8 efnislög og vængirnir 4 efnislög.
Þegar barnið er vaxið upp úr bleiunni er hún tilvalin sem innlegg í vasableiu.
Hægt að nota með Nappi Nippas bleiufestingum eða leggja beint á bleiucover.
Bleiurnar þarf að for-þvo á háum hita og þurrka á milli þvotta helst tvisvar til þrisvar fyrir notkun. Þetta er gert til þess að ná upp rakadrægni bleiunnar. Bleiurnar verða rakadrægari með hverjum þvotti. Full rakadrægni er komin eftir 8-10 þvotta en um að gera að byrja að nota bleiurnar fyrr.
Þvottur. Nota á lítið þvottaefni. Ekki nota mýkingar- né bleikiefni.
Hægt er að þurrka bleiurnar í þurrkara eða hengja þær upp.

Pakki með 6 prefolds í small
Verð: 2.990
Pakki með 6 prefolds í medium eða large
Verð: 3.990
Endurnýting
Þegar barnið er vaxið upp úr prefolds bleiunum er mögulega hægt að skila þeim inn fyrir inneign upp í nýjar bleiur eða aðrar vörur hjá ISbambus.com.
Prefolds bleiurnar verða að vera í góðu lagi, blettalausar, hreinar og lausar við alla lykt.
200 kr. fást fyrir hverja prefolds bleiu.