Upplýsingar um taubleiur

Spurningar og svör um taubleiur og notkun þeirra.

Hvað er hvað?

  • AIO (allt-í-einni) bleia er einfaldasta gerðin af taubleium og einna líkust bréfbleium. Mjúkt efni næst húðinni, fast innlegg þar fyrir innan og ysta lagið er vatnshelt. Ekki er þörf á neinum aukahlutum en í sumar gerðir er hægt að setja auka innlegg. Fest með riflási eða smellum.
  • Vasableia er bleia í tveimur hlutum. Bleian sjálf er úr mjúku efni næst húðinni og vatnsheldu efni yst, á milli myndast vasi þar sem innlegg er sett í. Með sumum tegundum fylgir innlegg með bleiunni en með öðrum þarf að kaupa þau sér. Fest með riflási eða smellum.
  • One-size bleia er bleia þar sem hægt er að stylla stærðina svo hún passi frá fæðingu þar til bleiutímabilinu líkur. Fest með riflási eða smellum. Til eru AIO bleiur, vasableiur, fitted bleiur og cover sem eru one-size.
  • Fitted bleia er úr mjúku rakadrægu efni sem er sniðin að barninu, jafnvel með teygjum um lærin og í mittið. Sumar sniðnar bleiur eru með vasa fyrir auka innlegg til þess að auka rakadrægnina, en aðrar eru með föstu innleggi eða engu innleggi. Fest með riflási, smellum eða án festinga (þá er t.d. hægt að nota NappiNippas bleiufestingu).
  • Prefolds er forbrotin bleia þar sem búið er að sauma saman nokkur lög af efni í ferhyrning til þess að gera hana rakadræga. Oft er henni skipt í þrjá hluta þar sem miðjan er þykkari en hliðarnar og eru merktar t.d. 3-6-3 eða 4-8-4 sem gefur til kynna fjölda efnislaga í hliðum og miðju. Nokkrar aðferðir eru notaðar við ásetningu og eru oftast leiðbeiningar á pakkningunni.
  • Gasbleia er ferhyrnt bómullar efni sem þarf að brjóta á ákveðinn hátt til að passi á barnið.
  • Innlegg er sá hluti bleiunnar sem tekur við vætunni og heldur henni í sér. Innlegg eru úr mismunandi efnum, microfiber, hamp, bambus, bómull eða ull.  
  • Doubler er þunnt viðbótar innlegg sem notað er þegar þörf er á auka rakadrægni. Úr microfiber, hamp, bambus eða bómull.
  • Cover/bleiubuxur eru notaðar utanyfir bleiur sem eru ekki með vatnsheldu ysta lagi, svo sem fitted bleiur, prefolds og gasbleiur. Úr vatnsheldu efni (PUL, ull eða flís) sem andar.
  • Hríspappír er þunnur pappír sem hægt er að setja innan í bleiu til að “grípa” hægðirnar og einfalda þannig kúkableiurnar. Hríspappírnum er svo hent beint í klósettið (nema ef um gamlar eða lélegar lagnir er að ræða). Ef aðeins hefur verið pissað í hríspappírinn er hægt að setja hann í þvottavélina með bleinum og nýta 3-5 sinnum.
  • NappiNippas er bleiufesting sem kemur í staðin fyrir næluna sem notuð var í gamla daga. Er notuð til að festa fitted bleiur sem eru ekki með festingar, prefolds og gasbleiur. Einfalt í notkun en passa þarf að bleian sé ekki of þunn þar sem festingin kemur svo hún fari ekki í gegnum bleiuna og í húð barnsins (á við um gasbleiur).
  • Riflás. Helstu kostir þess að hafa riflás sem festingu: Fljótlegt að setja bleiuna á, sérstaklega þægilegt þegar börn vilja ekki liggja kyrr, mittismálið er mun stillanlegra en þegar um smellur er að ræða. Helstu ókostir: Slitnar meira en smellurnar og er viðkvæmari. Ef bleian passar ekki vel á barnið og riflásinn ekki staðsettur á góðum stað þá getur hann sært húð barnsins við læri og/eða maga (mismunandi eftir tegundum).
  • Smellur. Helsti kostur: Endast nánast endalaust (sum fyrirtæki ábyrgjast jafnvel smellurnar í nokkur ár). Helstu ókostir: Ekki eins mikill stillanleiki eins og með riflásinn. Það er lengur verið að setja bleiuna á en þegar um riflás er að ræða. Passa þarf að smella ekki í húð barnsins.

Hvað þarf ég margar bleiur?
Fyrir nýbura er gott að miða við u.þ.b. 10-12 bleiur fyrir hvern sólarhring.
Smátt og smátt fækkar þeim niður í u.þ.b. 5-8 bleiur.

Hvernig geymi ég óhreinar bleiur?
Það er best fyrir PUL-efnið (vatnshelda efnið í AIO og vasableium) að geyma bleiurnar á þurrum stað (ekki í bleyti). Ef þær fá að þorna sjálfar á milli þvotta þá eru minni líkur á lykt. T.d. er hægt að leggja þær fyrst með blautu hliðina upp á bala-brún áður en þær fara ofan í balann sem þær eru geymdar í þar til þær fara í þvott. Fitted bleiur, prefolds og gasbleiur er hægt að geyma eins eða í bleyti.

Hvernig þvæ ég bleiurnar?
Flestar bleiur má þvo á 60°C og ágætt er að þvo bleiurnar á frekar löngu þvottakerfi, jafnvel með forþvotti.
Hægðir er hægt að skola úr fyrir þvott (en það er þó ekki nauðsynlegt þegar um mjólkurhægðir er að ræða).
Notið aðeins milt þvottaefni í duftformi sem inniheldur engar olíur og aðeins þarf að nota lítið magn í hvern þvott. Ágætt getur verið að setja á auka skolun til þess að vera viss um að allt þvottaefni hefur skolast úr.
EKKI nota mýkingar- eða bleikiefni.

Hversu oft þvæ ég?
Á hverjum degi, annan hvern dag eða jafnvel þriðja hvern dag (ekki er mælt með því að þvo sjaldnar en það).
Þetta er spurning um hvað hentar hverjum og einum og hversu margar bleiur eru til á heimilinu.

Þarf ég að þvo bleiurnar fyrir notkun?
Já, allar bleiur og innlegg þarf að þvo fyrir fyrstu notkun.
Bleiur og innlegg úr náttúrulegum efnum þarf að for-þvo jafnvel nokkrum sinnum og þurrka á milli, fyrir notkun til að ná upp rakadrægni. Betra er að for-þvo náttúruleg efni sér eða með t.d. handklæðum (ekki með bleium sem eru með einhvers konar flísefni).
Aðrar bleiur og innlegg er nóg að þvo og þurrka einu sinni fyrir fyrstu notkun.

Þurrkun
Til þess að bleiurnar endist sem lengst er betra að hengja þær upp í stað þess að setja þær í þurrkara. Vasableiur þorna fljótt á snúrunni. AIO eru lengur að þorna en spara má tíma með því að setja þær á ofninn (þó þarf að passa að hann sé ekki of heitur). Innleggin má henja upp eða setja í þurrkara. Ef þurrkari er notaður fyrir bleiurnar þarf að fara eftir ráðleggingum á bleiunum um hitastillingar þurrkarans, sérstaklega þarf að passa bleiur með riflási.
Sumar bleiur úr náttúrulegum efnum verða mýkri ef þurrkaðar í þurrkara.

Blettir
Besti blettaeyðirinn er sólarljós. Hengdu blettóttar bleiur út í sólina og hún sér um vinnuna. Virkar jafnvel þó það sé skýjað, en þá gæti þurft lengri tíma.




Ef óskað er eftir frekari upplýsingum
dagny [at] isbambus.com