Um bambus
- Bambus er hraðvaxnasta planta heims, reyndar er bambus ekki trjátegund heldur gras og vex sem slíkt. Sumar tegundir geta vaxið um allt að 120 cm á dag.
- Af yfir 1200 tegundum sem til eru af bambus þá eru fötin framleidd úr tegund sem pandabirnir borða ekki.
- Bambus tekur upp nærri 5 sinnum meira af gróðurhúsa lofttegundum og framleiðir 35% meira súrefni en sama magn af trjám, sem gerir bambusinn að framleiðanda fyrir ferskt loft. Þannig er ræktun hans frábær í baráttunni við gróðurhúsaáhrifin.
- Bambus hefur bakteríudrepandi eiginleika frá náttúrunnar hendi, þ.e.a.s. bakteríur þrífast ekki í bambus.
- Þegar efni er búið til úr bambus verður það svo mjúkt að því er líkt við kasmir og silki.
- Bambusefni er næstum tvöfalt rakadrægara en venjuleg bómull og heldur því líkamanum þurrum og hlýjum. En einnig hafa bambustrefjarnar örsmá göt sem leyfir fötunum að anda.
- Frá náttúrunnar hendi hafa bambusfötin vörn gegn UV geislum sólar.
- Bambusinn er ræktaður án áburðar, án skordýraeiturs og án erfðarbreytinga. Hann sáir sér sjálfur og er lífrænn.